Múgavélar
A complete updated range of rakes is available to meet all your different needs. Excellent raking quality, easy handling and a durable design are just some of the many good reasons to buy a Massey Ferguson rake.
Helstu kostir
Tækni og nýsköpun
- Einnar stjörnu
- Tveggja eða fjögurra stjörnu
- Tveggja stjörnu með miðjurakstri
- Tveggja stjörnu með hliðarrakstri
- Fjögurra stjörnu með miðjurakstri
Raksturshöfuð
Stjörnuhúsið frá Massey Ferguson ver alla mikilvæga íhluti fyrir óhreinindum og ryki. Þessi hönnun tryggir langa endingu.
Kambadrif
Endurbætt lögun kambadrifsins, sem er gert úr kúlugrafítsteypujárni, sér til þess að búnaðurinn gangi eins mjúklega og kostur er og að tindunum sé lyft á hraðvirkan og nákvæman hátt.
Nútímaleg og gamalreynd hönnun
Stór drifeiningin og vandað tindaarmahúsið úr álblendi eru góð dæmi um hönnun sem er í senn nútímaleg og gamalreynd.
Múgarakstur til hægri
Allar Massey Ferguson rakstrarvélar með einni stjörnu raka múgana til hægri. Þannig ert þú ávallt með fullkominn múga í augsýn vegna þess að stjórntæki dráttarvélarinnar eru á hægri hönd.
Sérhæfð boltafesting
Stjörnuhúsið er boltað saman með keilulaga hring svo úr verður sterk eining. Kosturinn við þetta er sá að boltarnir verða ekki fyrir neinum skeráhrifum, heldur eingöngu þrýsti- og togkrafti.
Tindastoð
Allar MF tindastoðir eru gerðar úr harðgerðu rörefni og eru framleiddar í heilsteyptu stáli. Tengipunkturinn fyrir tindaarminn er fullkomlega sniðinn svo að hægt sé að koma tindaarminum fyrir án fyrirhafnar og um leið takmarka slit.
Festir tindar
Tindunum er ekki ýtt inn yfir tindarörið heldur er hver tindur festur með skrúfu neðan frá. Ávinningur þess er að sú hlið armsins sem snýr að uppskerunni er slétt og uppskeran festist ekki eins auðveldlega í arminum.
Fullkomin vinnuhæð
Línuleg hæðastilling, sem er staðalbúnaður, aðlagar sig auðveldlega að vinnuhæð og jarðvegsaðstæðum.
Röðun tindaarma í snertilínu
Röðun tindaarma í snertilínu skilar sem bestum rakstri þannig að úr verði góður múgi. Þannig er hægt að vinna á umtalsvert meiri hraða – sem kemur sér vel þegar veðurfar er óhagstætt.
Aflrás
Allar aflrásir í Massey Ferguson rakstrarvélunum eru útbúnar álagsvörn. Þetta kemur í veg fyrir dýrar viðgerðir og langan biðtíma á meðan uppskerutíð stendur yfir.
Raksturshöfuð
Stjörnuhúsið frá Massey Ferguson ver alla mikilvæga íhluti fyrir óhreinindum og ryki. Þessi hönnun tryggir langa endingu.
Kambadrif
Endurbætt lögun kambadrifsins, sem er gert úr kúlugrafítsteypujárni, sér til þess að búnaðurinn gangi eins mjúklega og kostur er og að tindunum sé lyft á hraðvirkan og nákvæman hátt.
Straumáhrif
Stjörnufjöðrun með hjöruliðum og þyngdardreifing í störnunum gera að verkum að stjörnurnar lyftast fyrst að framan og síðan að aftan. Þegar þær eru lækkaðar eru það hjálparhjólin fyrir aftan stjörnuna sem snerta jörðina fyrst og síðan fremri hjólin.
Aðlögun hæðalandslags
Forðist skemmdir í sverðinum vegna tindanna, jafnvel í hæðóttu landslagi. Með Massey Ferguson er raksturinn alltaf snyrtilegur og skilur ekki eftir sig leyfar - sem skilar sér í hágæða uppskeru.
Stjörnufjöðrun með hjöruliðum
Stjörnufjöðrunin með hjöruliðum sér til þess að svarðarfylgnin sé ávallt sem best, jafnvel við erfið skilyrði. Stjarnan getur fylgt jörðinni fullkomlega eftir óháð grindinni, hvort sem hallinn er langsum eða þversum.
Engin borun í jörðu
Þannig er komið í veg fyrir að tindarnir rekist niður í jörðina. Engin borun, engar skemmdir á sverðinum, engin uppskerumengun - hágæða uppskera.
SteerGUARD
Massey Ferguson býður upp á einkaleyfisverndaðan stýrisbúnað fyrir rakstrarvélina sem vinnur inni í grindinni. Grindin ver stýrisásinn fyrir skemmdum og ólíkt stýrisstöngum sem komið er fyrir að utanverðu er hann aðeins með tvo liði.
SteerGUARD - Stýrishreyfing
Stýrishreyfingin er flutt frá stýrisstönginni til hjólbarðanna með hjálp hjólvalarins með stillanlegum skriðstöngum. Skriðstangirnar eru uppsettar með keilulaga hausum til að tryggja slitþol við margra ára notkun.
SteerGUARD - beinn gírkassi
Aðal ávinningurinn af hönnun þessa stýriskerfis er bein stýring stýrishreyfingarinnar. Rakstrarvélin eltir alltaf nákvæmlega í spor dráttarvélarinnar en er á sama tíma sérstaklega lipur.
Röðun tindaarma í snertilínu
Röðun tindaarma í snertilínu skilar sem bestum rakstri þannig að úr verði góður múgi. Þannig er hægt að vinna á umtalsvert meiri hraða – sem kemur sér vel þegar veðurfar er óhagstætt.
Sjálfvirk hæðatakmörkun
Lágmarks flutningshæð er ætíð náð, sama hvaða vinnubreidd hefur verið valin. Með sjálfvirka hæðatakmörkun í spilduendakeyrslu þarf ekki lengur að slökkva á aflúttaki dráttarvélarinnar í spilduendabeygjum.
Stillanleg vinnubreidd
Vinnubreiddin er stillanleg án verkfæra og, með hjálp stýriskambans sem er stillanlegur að utanverðu, auðveldar fullkomna lögun múga fyrir vélarnar sem á eftir fylgja.
PRO gerðirnar
Each rotor chassis on the MF RK 862 PRO and MF RK 1002 PRO is equipped with a tandem axle and six,18-inch wheels and tyres for optimum performance.
PRO gerðirnar - Tvöföld framhjól
The twin leading wheels have also been redesigned.. Larger and rigid-mounted, they ensure accurate ground following - even under difficult conditions in stubble fields.
Tveggja stjörnu rakstrarvél með hliðarrakstri
MF rakstrarvélarnar með hliðarmúgarakstri er sveigjanleg lausn fyrir ólíkar tegundir landslags. Þessar rakstrarvélar eru færar um að mynda tvo mjóa múga, einn stóran múga, eða tvöfaldan múga með því að fara tvisvar sinnum yfir.
Stór skörun á milli stjarna
Stór skörun á milli stjarna tryggja snyrtilegan rakstur og múgalögun jafnvel við erfiðar aðstæður.
MF RK 702 TR-SDX Dráttarbeisli
Gerðin með uppsettu dráttarbeisli er 3 m í flutningsbreidd með tindum svo hægt sé að færa sig fyrirhafnarlaust á milli túna. Samanlögð hæð flutningsundirvagnanna er alltaf í lágmarki burt séð frá vinnubreidd settsins.
Fjögurra stjörnu rakstrarvél með miðjurakstri
Þessar afkastamiklu rakstrarvélar skilja eftir sig framúrskarandi múga fyrir stærri ferbaggavélar og sjálfknúnar þreskivélar með fjórum stjörnum og 12,5 m eða 14 m vinnubreidd.
Fjögurra stjörnu uppbygging rakstrarvélar
Einföld en sterkbyggð uppbygging fjögurra stjörnu MF rakstrarvélanna felur í sér auðvelda notkun og aukinn sveigjanleika þegar þær eru notaðar á fleiri en einu býli.
Loftbremsukerfi (ABS)
Til að tryggja hámarksöryggi við akstur er vélin útbúin hágæða loftbremsukerfi (ABS) sem auðveldar erfið verkefni í hæðóttu landslagi.
Spilduendastýrikerfi
Uppsett á MF RK 1254 TRC gerðinni. Kerfið stýrir seinkun í hækkun og lækkun á aftari stjörnunum og hjálpa þér að mynda fullkomlega lagaða múga í spilduendum.
MF RK 1254 TRC EC Öryggisvalmöguleikar
MF RK 1254 TRC er einnig fáanleg án loftbremsukerfis og möguleika á vökvabremsum, fyrir þá sem hafa ekki þörf fyrir loftbremsukerfi.
Snarpur flutningstími
MF RK 1254 TRC Gen2, MF RK 1254 TRC-PRO Gen2 og MF RK 1404 TRC-PRO Gen2 eru hannaðar fyrir flutningshraða allt að 50 km/klst*, sem tryggir skjótar ferðir frá akri til akurs. *Landsbundið
PRO gerðirnar og ISOBUS
MF RK 1254 TRC-PRO Gen2 og MF RK 1404 TRC-PRO Gen2 eru með fulla ISOBUS-aðgerð á öllum hrífuaðgerðum fyrir fullkomna stjórn og þægindi.
Fáanlegar gerðir
Gerð |
Merking vélar |
Vinnslubreidd (m) |
Fjöldi stjarna |
Tindaarmar á stjörnu |
---|---|---|---|---|
MF RK 341 DN | Þriggja punkta tengi, Einnar stjörnu rakstrarvél, Sveigjanlegur burðarbiti | 3,4 | 1 | 8-3 |
MF RK 361 DN | Þriggja punkta tengi, Einnar stjörnu rakstrarvél, Sveigjanlegur burðarbiti | 3,6 | 1 | 10-4 |
MF RK 381 DN | Þriggja punkta tengi, Einnar stjörnu rakstrarvél, Sveigjanlegur burðarbiti | 3,8 | 1 | 10-4 |
MF RK 391 DN | Þriggja punkta tengi, Einnar stjörnu rakstrarvél, Sveigjanlegur burðarbiti | 3,85 | 1 | 10-4 |
MF RK 421 DN | Þriggja punkta tengi, Einnar stjörnu rakstrarvél, Sveigjanlegur burðarbiti | 4,2 | 1 | 12-4 |
MF RK 451 DN | Þriggja punkta tengi, Einnar stjörnu rakstrarvél, Sveigjanlegur burðarbiti | 4,5 | 1 | 12-4 |
MF RK 451 TR | Einnar stjörnu rakstrarvél, Tengibúnaður/dráttarbeisli á dráttarvél | 4,5 | 1 | 12-4 |
MF RK 702 TR-SDX | Tveggja stjörnu rakstrarvél, Hliðarmúgarakstur | 7 | 2 | 12-4 |
MF RK 662 SD-TRC | Tveggja stjörnu rakstrarvél, Hliðarmúgarakstur | 6,65 | 2 | 10 |
MF RK 672 SD-TRC | Tveggja stjörnu rakstrarvél, Hliðarmúgarakstur | 6,7 | 2 | 12-4 |
MF RK 772 SD-TRC | Tveggja stjörnu rakstrarvél, Hliðarmúgarakstur | 7,7 | 2 | 12-4 |
MF RK 842 SD-TRC | Tveggja stjörnu rakstrarvél, Hliðarmúgarakstur | 8,4 | 2 | 13-4 |
MF RK 842 SD-TRC PRO | Tveggja stjörnu rakstrarvél, Hliðarmúgarakstur | 8,4 | 2 | 13-4 |
MF RK 662 TRC | Tveggja stjörnu rakstrarvél, miðmúgarakstur | 6,6 | 2 | 10-4 |
MF RK 762 TRC | Tveggja stjörnu rakstrarvél, miðmúgarakstur | 7,6 | 2 | 12-4 |
MF RK 802 TRC | Tveggja stjörnu rakstrarvél, miðmúgarakstur | 8 | 2 | 12-4 |
MF RK 802 TRC PRO | Tveggja stjörnu rakstrarvél, miðmúgarakstur | 8 | 2 | 12-4 |
MF RK 1002 TRC | Tveggja stjörnu rakstrarvél, miðmúgarakstur | 10 | 2 | 15-5 |
MF RK 1002 TRC PRO | Tveggja stjörnu rakstrarvél, miðmúgarakstur | 10 | 2 | 15-5 |
MF RK 1254 TRC EC | miðmúgarakstur, Fjögurra stjörnu rakstrarvél | 12,5 | 4 | 12-4 |
MF RK 1254 TRC Gen2 | miðmúgarakstur, Fjögurra stjörnu rakstrarvél | 12.5 | 4 | 12-4 |
MF RK 1254 TRC PRO Gen2 | miðmúgarakstur, Fjögurra stjörnu rakstrarvél | 12.5 | 4 | 12-4 |
MF RK 1404 TRC PRO Gen2 | miðmúgarakstur, Fjögurra stjörnu rakstrarvél | 13,80 | 4 | 13-4 |
Deila