MF BETA
MF Beta-kornþreskivélarnar bjóða upp á einfalda og hagnýta hönnun þar sem fara saman tækni og virkni sem er einföld í notkun á akrinum – þar sem tíminn skiptir öllu máli.
Góð vinnuaðstaða í stýrishúsinu er lykillinn að því að vinnuvélin og ökumaðurinn geti skilað sem mestum afköstum. Góð yfirsýn og haganleg staðsetning stjórntækja sér til þess að vinnan gangi greiðar fyrir sig.
Helstu kostir
Tækni og nýsköpun
Freeflow
Þar sem skurðarbreiddin er 4,2 m – 7,6 m, er Freeflow™ borðið útbúið rafsoðinni grind sem þil (t.d. kornplötur) eru fest á með boltum, nokkuð sem auðveldar til muna að skipta út varahlutum.
PowerFlow
PowerFlow™ er skurðarborðið sem er til viðmiðunar í geiranum með meiriháttar afköst í langflestum aðstæðum. Þetta sannreynda reimadrif knýr uppskeruna inn í þreskivélina með hnökralausu flæði.
Aflfæðulínurúlla
Aflfæðulínurúllan er staðsett fyrir framan aðal færistokkinn og gefur jafnt uppskeruflæði frá skurðarborði inn í aðal færistokkinn.
Færisnigilsfingur yfir alla breiddina
Fingur sem ná yfir alla breidd færisnigilsins á Freeflow™ skurðarborðinu auka alla framleiðni færisnigilsins sem tryggir jákvætt og hratt flæði inn í færistokkinn.
PowerFlow hnífur
Hnífurinn er gegnheill staðsettur 1,14 m frá færisniglinum sem veitir bætta yfirsýn og afköst. Rifflaðar PowerFlow™ reimarnar knýja uppskeruna frá hnífnum og inn í aðalfærisnigilinn á jöfnum hraða.
Schumacher hnífur - FreeFlow skurðarborð
Schumacher hnífur er álitinn afkastamesti hnífurinn í geiranum og sker 1.254 skurði á mínútu. Sjálfhreinsandi og sjálfslípandi, þetta tryggir jafnt flæði uppskeru í erfiðum aðstæðum.
TerraControl II
TerraControl II býður upp á blöndu af sjálfvirkum eiginleikum staðlaða fyrir hæðarstjórnun skurðarborðs (FreeFlow™ or PowerFlow™), svarðarfleytingarkerfi (jarðvegsþrýstingur), og stjórnkerfi fyrir spilduenda - öllum mælieiningum er stjórnað með stjórnlokanum.
Multicrop Separator - MCS
MCS eiginleikinn býður upp á stórt þreskipláss þar sem eins mikið korn er fjarlægt og hægt er áður en uppskeran berst í hálmhristilinn. MCS getur snúið þreskivalnum yfir topp hálmvindunnar þegar ekki er þörf á henni.
9000 lítra Korngeymir
Korngeymarnir eru í ríflegri stærð (9000 lítrar á staðalútgáfunni og 8600 lítrar á ParaLevel útgáfunni) auk þess sem losunarhraðinn upp á 105 l/sek. er einn sá hæsti í þessum flokki þreskivéla.
6 raða strásaxari
6 raða strásaxarinn er sérhannaður til að uppfylla söxunar- og dreifingarskilyrði bænda með minna unninn jarðveg. Hnífarnir eru skörðóttir til að gefa jafnari skurð og minnka aflnotkun.
Valkvæmur þrepaþreskivölur
MF býður uppá valkvæman þrepaþreskivöl sem er hannaður til að ráða við ólíkar tegundir uppskeru. Umbreytingatíminn á milli þess að vinna með smákornauppskeru og að vinna með stærri korn svo sem soja, maís eða sólblóm telur á mínútum í staðinn fyrir klukkustundum.
Hálmhristill
Langir hálmhristlarnir eru með fjórum þrepum með svokölluðum „virkum hliðum“. Lóðréttu hlutar hristilþrepanna eru 21 cm á hæð og samanstanda af grindum sem hleypa í gegnum sig. Framþrep hálmhristlanna eru sérstyrkt fyrir maís.
Títubrjótar
Títubrjótarnir veita auka þyngd með álagsmótstöðulistum sem auka við þreskigetuna og gera þreskinguna harðari. Þetta minnkar álag á drifin, aflþörf, og eldsneytisþörf.
Þreskihvelfa
Þreskihvelfan er fáanleg með mismunandi bili á milli víra og aftari endi hvelfunnar er með helmingi fleiri víra en framendinn. Þetta sýnir sig í fullkomnu jafnvægi á milli hámarks þreskiframleiðni og góðu flæði korna í gegnum hvelfuna.
Hristiskór
Afköst hristillengingarinnar eru tryggð með hönnun sigtanna. Afkastamikil sigtin eru sérhönnuð með lóðréttum rimlum sem bæta efnið afurðina og hægt er að opna lengra bil á milli rimlanna til þess að meiri afurð berist í gegn.
Hrísgrjónaþreskivölur
Sérhannaður hrísgrjónaþreskivölur er í boði með einstökum hælum og tönnum, séstaklega fyrir þreskingu í erfiðum aðstæðum.
ParaLevel kerfi
Einfaldur samhliða tengibúnaður sér til þess að hægt er að breyta hallanum án fyrirhafnar úti á akri. Bæði MF 7360 og MF 7370 eru í boði í ParaLevel útgáfu, en þetta einkaleyfisverndaða kerfi býður upp á hallastillingu í allt að 20% halla (með fjórhjóladrifi) og 15% halla (með tvíhjóladrifi).
ATRAK
Gúmmíhjólförin, sem er valkvæmur búnaður, hefur jákvæð áhrif á gírskiptingu, sjálfvirka strekkingu og þjöppun jarðvegs í erfiðum aðstæðum. Samtvinnuð aukadrifin eru sérstaklega þróuð fyrir þungt hlass.
PLi útgáfa
Ef um meira jaðarland er að ræða getum við einnig boðið uppá MF Beta 7360 PLi og MF Beta 7370 PLi gerðirnar sem, auk ParaLevel kerfisins, veita aukna afkastagetu með “Integrale” eiginleika afturöxuls hæðarstillingar.
TechTouch stjórnstöð
TechTouch stjórnstöðin er í fullkominni sjónlínu og innan handar sem gerir allar helstu afkastaupplýsingar og stillingar fyrir þreskivélina einstaklega aðgengilegar á auðnota og auðstillanlega snertiskjánum.
Næturvinnupakki
Næturvinnupakki inniheldur H9 ljósakastara sem veitir framúrskarandi alhliða skyggni allt kvöldið og fram á nótt.
Flatt himnulyklaborð
Flatt himnulyklaborð er að finna hægra megin við armbríkina og er notað til að stjórna helstu aðgerðum vélarinnar. Mjúkir upphleyptir hnappar leiða þig beint í valmyndir í TechTouch stjórnborðinu.
Auto-Guide xls valmöguleiki
Auto-Guide xls valmöguleikinn nýtir nýjustu tækni til að leiða þig að hámörkun afkastagetunnar með því að kjörsníða útlínur túnsins - stillist auðveldlega með Auto-Guide xls stjórnstöðinni og nær allt að 5 cm nákvæmni eða þú getur notað RTK merki ef þarf.
PowerGrip loki
Höndin venst nýja notendaviðmótinu af sjálfri sér - Fjölnota PowerGrip lokinn er ofan á armbríkinni þar sem allir aðaltengirofar vélarinnar eru einnig staðsettir.
PowerGrip Armbrík
Þessi armbrík fyrir hægri hönd er aðal stjórneining vélarinnar þar sem aðaltengirofar vélarinnar eru staðsettir á sama stað og inngjafarstýringin. Stór mjúkur púði fyrir handlegginn er hannaður með hámarks þægindi í huga fyrir langa vinnudaga.
AGCO Power vél
AGCO Power vélin er hönnuð til að uppfylla kröfur nýjustu mengunarstaðla með þriðju kynslóðar SCR tækni og er því ein sú háþróaðasta sem völ er á í dag.
AGCO Power vélarafköst
Eldsneytisinngjöfin er hönnuð til að halda flatri togkúrvu, sem þarf til að veita samfellda inngjöf undir álagi þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Þar að auki getur þú reiknað með minni núningi og órtúlega lítilli eyðslu á hvert tonn sem þýðir framúrskarandi h
Auðveld eldsneytisáfylling
Auðveld eldsneytisáfylling - geymarnir eru staðsettir hlið við hlið til að auðvelda aðgengi.
Auðveld skoðun
Stigahandfang eykur öryggi og aðgengi við skoðun.
Samsettur panell
Samsettir panelar auðvelda og flýta fyrir skoðun með ljósum fyrir næturvinnu.
Hreinsun vatnkassa
Öruggt og einfalt aðgengi til að hreinsa vatnskassann.
Fáanlegar gerðir
Gerð |
Hámarksafl (hestöfl)* |
Stærð korngeymis (l) |
Losunarhraði (l/sek.) |
Hámarks skurðarbreidd (m) |
Vél |
---|---|---|---|---|---|
MF Beta 7360 | 306 | 9.000 | 105 | 7,6 | AGCO POWER 6 strokka, 7,4 l |
MF Beta 7370 | 360 | 9.000 | 105 | 7,6 | AGCO Power 6 strokka, 8,4 l |
MF Beta 7360 ParaLevel | 306 | 8.600 | 105 | 7,6 | AGCO POWER 6 strokka, 7,4 l |
MF Beta 7370 ParaLevel | 360 | 8.600 | 105 | 7,6 | AGCO Power 6 strokka, 8,4 l |
MF Beta 7360 PLi | 306 | 9.000 | 105 | 7,6 | AGCO POWER 6 strokka, 7,4 l |
MF Beta 7370 PLi | 360 | 8.600 | 105 | 7,6 | AGCO Power 6 strokka, 8,4 l |
* Með Power Boost | PLI = ParaLevel Integrale-kerfi (hallastilling þreskivélarinnar í allt að 30% halla) |
Deila